Aðalfundur Listhlaupadeildar Skautafélags Reykjavíkur

20/03/2019

Aðalfundur Listhlaupadeildar Skautafélags Reykjavíkur hefur verið boðaður fimmtudaginn 28. mars kl.19.30 í félagsaðstöðu Skautafélagsins (fyrir ofan stúkuna í Skautahöllinni í Laugardal).

Þeir sem hafa hug á að bjóða sig fram til stjórnarsetu í Listhlaupadeildinni eru beðnir um að boða framboð sitt og senda póst á ritari.lsr@gmail.com fyrir 27. mars. Það vantar nýja stjórnarmenn.

Boðið er upp á súpu á fundinum.

Dagskrá fundarins:

1. Kosinn fundarstjóri og aðrir embættismenn fundarins
2. Lesin upp fundargerð síðasta aðalfundar deildarinnar
3. Lögð fram skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár
4. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar til samþykktar
5. Kosning skoðunarmanna reikninga
6. Kosning stjórnar til eins árs:
a) formanns
b) fjögurra meðstjórnenda
c) þriggja varamanna
7. Önnur mál
kveðja,
Stjórn LSR