Sumarskautaskóli LSR 2019

13/05/2019

Sumarskautaskóli SR

Skautafélag Reykjavíkur – listhlaupadeild er með sumarskautaskóla í boði eins og undanfarin ár.
Þau verða með sumarskautaskólann í júní, júlí og í ágúst eins og hefð er fyrir, námskeiðin er fyrir stráka og stelpur á aldrinum 4 til 11 ára. Staðsetning námskeiðsins er í Skautahöllinni í Laugardal.

Námskeiðið samanstendur af:
Kennslu í grunnskautun og öryggisatriðum.
Kynningu á grunnatriðum í listhlaupi á skautum.
Upphitun, teygju- og þrekæfingum sem fara fram í leikjaformi úti og inni.
Námskeiðin eru hálfan daginn kl. 08.45 – 12.00 eða kl. 13.00 – 16.15. Einnig eru í boði námskeið allan daginn frá kl. 08:45 – 16:15 en þá þurfa börnin að koma með nesti í hádeginu.
ATH! Börnin þurfa að koma með hlý föt og vettlinga fyrir ístímann og hollt nesti.

Júní
Vika 1. 11. – 14. júní (þriðju – föstudags) – 4 dagar kr. 12.000,- 1/2 dagur, 24.000 kr. allan daginn

Júlí og ágúst
Vika 1. 15. – 19. júlí (mánu – föstudags) – 5 dagar kr. 15.000,- 1/2 dagur, 30.000 kr. allan daginn
Vika 2. 22. – 26. júlí (mánu – föstudags) – 5 dagar kr. 15.000,- 1/2 dagur, 30.000 kr. allan daginn
Vika 3. 29. júlí. – 2. ágúst (mánu – föstudags) – 5 dagar kr. 15.000,- 1/2 dagur, 30.000 kr. allan daginn
Vika 4. 6. – 9. ágúst (þriðju– föstudags) – 4 dagar kr. 12.000,- 1/2 dagur, 24.000 kr. allan daginn
Vika 5. 12. – 16. ágúst (mánu – föstudags) 5 dagar kr. 15.000,- 1/2 dagur, 30.000 kr. allan daginn
Vika 6. 19. – 21. ágúst (mánu – miðvikudags) – 3 dagar kr. 9.000,- 1/2 dagur, 18.000 kr. allan daginn

Skráning fer fram á skautafelag.felog.is , velja þarf tímabil og fyrir / eftir hádegi eða allan daginn.
Umsjónarmenn námskeiðanna eru þjálfarar og íþróttafræðingur.
Heimasíða Skautafélags Reykjavíkur
Netfang: gjaldkeri.lsr@gmail.is