Sumarbúðir LSR 2019

25/05/2019

*Birt með fyrirvara um innsláttarvillur og síðan er í vinnslu næstu daga.

Skráning er hafin í sumarbúðir 2019, en í ár verða búðirnar í júní, júlí og ágúst í Skautahöllinni í Laugardal.

Dagskrá sumarbúðanna er spennandi og metnaðarfull. Auk þjálfara LSR fáum við til okkar gestaþjálfara sem og annað íþróttafólk sem hjálpar til við ólíka hluta undirbúnings fyrir komandi tímabil. Verið er að leggja lokahönd á dagskrána og verður hún birt á næstu dögum.

Mikilvægi sumarbúða fyrir iðkendur

Iðkendur ná mestu framförum í sumarbúðunum þar sem þau eru á ísnum að gera æfingar 5 daga vikunnar í 1-2 tíma á dag. Þau fá þjálfun hjá mismunandi þjálfurum, öllum með mikla reynslu af skautaþjálfun, þar sem í hverjum tíma er unnið markvisst að vissum atriðum. Auk þjálfurnar á ís verða dagarnir brotnir upp með mismunandi afísæfingum og dansi. Þessar afísæfingar stuðla að auknum styrk og liðleika auk þess sem þær kenna vissar hreyfingar til að nota í túlkun í skautadansinum.

Það að taka of langa pásu frá skautasvellinu á sumrin getur orðið til þess að iðkendur missa niður getu sem svo tekur dýrmætan tíma að vinna upp að hausti. Skautaíþróttin er ung hér á landi og er í stöðugri þróun. Við hjá LSR höfum horft til þess hvernig aðrar þjóðir haga sinni þjálfun. Víða erlendis skiptist árið í 3 tímabil, æfingatímabil þar sem iðkendur byggja sig upp og bæta við sig í getu. Það tímabil er oftast frá miðjum eða lok júní og fram í lok ágúst. Þá tekur við keppnistímabil þar sem áhersla er lögð á að viðhalda þeim árangri sem náðist yfir sumarið og byggt ofan á það fyrir þær keppnir sem framundan eru. Þriðja tímabilið er svo hvíldartímabilið sem hefst þegar keppnum lýkur, þá er oftast aðeins slakað á og æfingum fækkar og tími til að gera eitthvað skemmtilegt eins og vorsýninginn okkar og hugað að nýjum dansi.  Síðan er nauðsynlegt að taka 3-4 vikur í frí.

Sumarbúðirnar eru ekki aðeins mikilvægar upp á framfarir heldur líka til að styrkja vinatengsl milli iðkenda, en góð félagsleg staða í íþróttinni er oft grundvöllur þess að iðkendur haldist lengur í íþróttinni.

Fyrir iðkendur sem eru komnir í keppnislínuna er ekki talið æskilegt að taka mikið meira en 3 vikur samfellt (mest 4 vikur) í frí þar sem þá, eins og áður segir, getur iðkandi farið að missa niður styrk og getu til að gera erfiðari stökk og spinna/snúninga. Þá hafa iðkendur oft þurft að fara erlendis í æfingarbúðir þar sem ekki hefur verði grundvöllur til að halda úti sumarbúðum hér á landi. Síðustu árin hefur LSR þó byggt upp öflugar sumarbúðir og fengið til sín gestaþjálfara til að þjálfa og hefur iðkendum fjölgað jafnt og þétt sem taka þátt í búðunum. Það hefur sparað þeim iðkendum sem hvað lengst eru komnir mikið fé að þurfa ekki að dvelja lengi erlendis í æfingarbúðum og bætt stöðu þeirra sem þátttakendum á alþjóðlegum skautamótum. Þjálfarar og stjórn LSR mælast til að iðkendur á keppnislínunni mæti sem mest til að byggja sig upp fyrir næsta keppnsitímabil.

Fyrir iðkendur sem eru í félagalínunni eru sumarbúðir mikilvægar til að læra ný stökk og spinn/snúninga og bæta sig í grunnskautun, rétt eins og lengra komna. Þeir iðkendur sem hafa það markmið að komast upp í hærri keppnisflokka ættu að reyna að mæta sem mest í sumarbúðir, það eykur líkurnar á að markmiðum verðir náð fyrr en ella.

Við teljum mikilvægt að bjóða sem flestum iðkendum okkar að koma í sumarbúðir og í ár eru búðir fyrir alla framhaldsiðkendur okkar, allt frá iðkendum sem eru nýkomnir upp úr skautaskóla og þá sem eru komnir það langt að keppa á erlendum mótum. Að auki verður sumarskautaskóli í júní, júlí og ágúst, eins og verið hefur síðustu sumur, en það námskeið er fyrir þá sem hafa verið í skautaskóla sem og þá sem eru að stíga sín fyrstu skref.  Einnig verður sú nýbreytni í ár að boðið verður upp á námskeið fyrir unlinga, jafnt nýja sem þá sem hafa verið á námskeiðum hjá okkur. En þó þarf að hafa í huga að til að hægt sé að halda úti svona búðum er nauðsynlegt að þátttaka í þeim sé góð. Er það von okkar að iðkendur okkar muni fjölmenna í sumarbúðirnar, bæta sig í íþróttinni í sumar og mæta tilbúnir til leiks þegar nýtt keppnistímabil hefst haust. Síðan ætlum við að reyna að fá til okkar grunnprófsdómara í viku 32-33 og þá er nauðsynlegt að ná einhverjum vikum í júlí og ágúst til að æfa fyrir grunnprófin.

Skráning er hafinn og fer fram hér: skautafelag.felog.is
Hér er hægt að finna upplýsingar um verð og hér er að finna dagskrá sumarbúðanna.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest í sumar.