10/03/2020
Aðalfundur Listhlaupadeildar Skautafélags Reykjavíkur hefur verið boðaður fimmtudaginn 19. mars kl.19.30 í félagsaðstöðu Skautafélagsins (fyrir ofan stúkuna í Skautahöllinni í Laugardal).
Þeir sem hafa hug á að bjóða sig fram til stjórnarsetu í Listhlaupadeildinni eru beðnir um að boða framboð sitt og senda póst á ritari.lsr@gmail.com fyrir 18. mars.
Boðið er upp á súpu á fundinum.
Dagskrá fundarins:
- Kosinn fundarstjóri og aðrir embættismenn fundarins
- Lesin upp fundargerð síðasta aðalfundar deildarinnar
- Lögð fram skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár
- Lagðir fram ársreikningar til samþykktar
- Kosning stjórnar til eins árs:
a) formanns
b) fjögurra meðstjórnenda
c)þriggja varamanna - Önnur mál
kveðja,
Stjórn LSR