U18 drengjalandsliðið í fjórða sæti í Istanbúl

10/03/2024

Ísland endaði í fjórða sæti á HM U18, A riðils þriðju deildar, eftir tap gegn Belgum í lokaleik mótsins. Liðið spilaði vel og stóð í hárinu á andstæðingunum sem þegar höfðu sigrað mótið og tryggt sér sæti í deildinni fyrir ofan að ári.

Íslenska landsliðið stóð sig með prýði ef horft er til þess að þetta er næst-yngsta liðið á mótinu. Það eru aðeins sex leikmenn sem eru á síðasta ári í flokknum, fæddir 2006, og átta leikmenn sem enn tilheyra formlega U16. Aðeins Bosnía-Hersegóvína er með yngra lið en þeir eru á leiðinni niður um deild. Sigurlið mótsins, Belgía, er með 12 leikmenn á efsta ári og aðeins einn leikmann úr U16.

Á HM U18 að ári spilar liðið aftur gegn Mexíkó, Nýja-Sjálandi og Tyrklandi en í hópinn bætast Hong-Kong úr riðlinum fyrir neðan en hverjir koma niður er enn ekki vitað en það mót er í næstu viku á Spáni.

U18 drengjalandslið Íslands í Istanbúl Tyrklandi mars 2024

 

SR-ingarnir fjórir stóðu sig með afburðum vel á mótinu.

Helgi Bjarnason
Maður leiksins úr liði Íslands gegn Bosníu-Hersegóvínu
Markahæsti leikmaður Íslands með 7 mörk
4. sæti yfir markahæstu leikmenn mótsins

Haukur Steinsen
Maður leiksins úr liði Íslands gegn Belgíu
Efstur varnarmanna Íslands með fjórar stoðsendingar

Ýmir Hafliðason
Annar markahæsti leikmaður Íslands með 3 mörk
13. sæti yfir markahæstu leikmenn mótsins

Haraldur Nickel
Haraldur var varamarkvörður Íslands á þessu móti, en hann er aðeins 14 ára gamall og fyrsta árið sem hann er gjaldgengur í U18 landslið Íslands.
Hann spilaði síðustu 7 mínútur gegn Bosníu og hélt hreinu.

Þetta var síðasta U18 mót Hauks en Helgi, Ýmir og Haraldur eru allir ennþá í U16.

Í starfsliðinu voru einnig SR-ingarnir Bjarki Jóhannesson sjúkraþjálfari og Axel Orongan þjálfari.

Bjarki Jóhannesson sjúkraþjálfari, Haraldur Nickel, Haukur Steinsen, Helgi Bjarnason, Ýmir Hafliðason og Axel Orongan þjálfari

 

Helgi tekur við verðlaunum sem besti leikmaður Íslands í leik gegn Bosníu.

 

 

Haukur tekur við verðlaunum sem besti leikmaður Íslands gegn Belgíu.