06/06/2017
Á morgun, miðvikudaginn 7. júní, verður haldinn aðalfundur Skautafélags Reykjavíkur í fundarsal D hjá ÍSÍ. ÍSÍ er að Engjavegi 6 í Laugardalnum. Ástæðan fyrir þessum flutningi er að vegna framkvæmda í Skautahöllinni í Laugardal er ekki hægt að halda fundinn í félagsherbergi félagsins og því flutningur á fundinum því nauðsynlegur.
Vonumst til að sjá sem flesta.
Dagskrá samkvæmt lögum félagsins.
Helgi Páll Þórisson, formaður aðalstjórnar.