12/03/2018
Í gær fór fram Global Girls’ Game IIHF í Skautahöllinni í Reykjavík.
Global Girls’ Game IIHF er alþjóðlegur viðburður sem fór fram um allan heim núna um helgina. Leikurinn spilaður til að vekja athygli á og efla kvennaíshokkí. Þar mætast bláir á móti hvítum í skemmtilegum hokkíleik en leikurinn endaði 3-1 fyrir hvíta. Þarna mættust hokkístelpur af höfuðborgarsvæðinu frá 3 ára og upp í 36 ára, allt frá nýliðum upp í reyndar landsliðskonur.
Það þarf auðvitað ekki að taka það fram að íshokkí er frábært íþrótt fyrir börn – hvort sem er fyrir stelpur eða stráka.
Áfram kvennaíshokkí!