Andri Freyr áfram Hokkískautaskólastjóri!

31/08/2016

Íshokkídeild Skautafélagsins endurréð Andra Frey Magnússon sem Hokkískautaskólastjóra í vetur!  Andri ætti að vera öllum félagsmönnum löngu kunnur enda hefur hann verið viðloðinn hokkískautaskólann í fjöldamörg ár ásamt því að vera dómari í Meistaraflokki og slyngur krulluspilari einsog sést á myndinni.  Andri mun byrja á því að taka á móti áhugasömum krökkum í hokkískautaskólanum sem verður næstkomandi sunnudag kl.12:00 – 12:45.  Við hvetjum alla félagsmenn að fjölmenna með syni, dætur, frændur og frænkur á staðinn og taka þátt í þessum bráðskemmtilega skautaskóla hokkídeildarinnar.

Nánari upplýsingar um skautaskólann má finna hér.