Í morgun í Skautahöllinni í Laugardal hittur vaskir menn frá Skautafélagi Reykjavíkur og ÍBR. Einnig var það fráfarandi rekstrarstjóri Skautahallarinnar Hilmar Björnsson. Þessi fríði flokkur manna fór í gegnum Skautahöllina með rannsakandi augum og hreinsuðu gríðarlegt magn af drasli sem hefur safnast á ýmsum stöðum í Skautahöllinni þar á meðan gömul sjónvörp, ónýta frystikistur og ísskápa svo eitthvað sé nefnt. Ýmiss gamall og útjaskaður hokkíbúnaður var látinn fara ásamt því að sá búnaður sem var í góðu standi var skipulagður í körfur, treygjur voru hengdar upp á herðatré og skipulag komið á hlutina. Óhætt er að segja að um gríðarlegt magn af drasli hafi farið úr höllinni og í sendi bil á leið í Sorpu.
Stjórn vill þakka þeim sem mættu sérstaklega fyrir mætinguna og að hafa gengið vasklega til verks. Meðflygjandi mynd er af sendibílnum rétt áður en hann lagði út hlaði.