Aðalfundur listhlaupadeildar

27/04/2017

Aðalfundur listhlaupadeildar Skautafélags Reykjavíkur hefur verið boðaður fimmtudaginn 18. maí, kl.20:00 í félagsaðstöðu skautafélagsins (fyrir ofan stúkuna í Skautahöllinn Laugardal).

Þeir sem hafa hug á að bjóða sig fram í stjórnarsetu í listhlaupadeildinni eru beðnir um að boða framboð sitt og senda póst á list@skautafelag.is fyrir 17.maí.

Dagskrá fundarins:

1. Kosinn fundarstjóri og aðrir embættismenn fundarins
2. Lesin upp fundargerð síðasta aðalfundar deildarinnar
3. Lögð fram skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár
4. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar til samþykktar
5. Kosning stjórnar til eins árs:
a) formanns
b) fjögurra meðstjórnenda
c) þriggja varamanna
6. Önnur mál

kveðja,

Stjórn LSR