Foreldrafundur hjá íshokkídeild
Sæl veriði kæru foreldrar. Stjórn íshokkídeildar boðar til foreldrafundar fimmtudaginn 28.jan. Kl 20:00 Á fundinum verða ræddar fyrirhugaðar breytingar hjá deildinni, það sem framundan er í vetur og önnur mál. Rjúkandi kaffi og kleinur á borðum. Vonandi sjáum við sem allra flesta. Kær kveðja, Stjórn íshokkídeildar Skautafélags Reykjavíkur.