Íshokkí

SR-ingar réðu ekki við grimman Björninn

Síðastliðinn föstudag áttust Reykjavíkurliðin við í meistaraflokki karla. Rimmur þessara liða hafa oftar en ekki verið afar spennandi. Það er skemmtileg hefð fyrir heilbrigðum ríg á milli SR og Bjarnarins sem síðan skilar sér í mögnuðum leikjum sem halda stuðningsfólki beggja liða á sætisbrúninni. En því var ekki þannig farið síðastliðið föstudagskvöld. Tiltölulegt jafnræði var

Nánar…


Annað kvöld munu SR-ingar taka á móti Birninum

Annað kvöld, föstudagskvöld kl.19:45, munu SR-ingar taka á móti Birninum í Meistrarflokki karla í íshokkí.  Björninn hefur byrjað tímabilið með einu tapi, á móti Esju 6 – 2, og einum sigri á móti SA, 7 – 0.  SR er með svipaða stöðu þ.e.as einn sigur á móti SA og eitt tap á móti Esju.  SR-ingar

Nánar…


Tap í gærkvöldi gegn Esju

SR laut í lægra haldi fyrir firnasterku liði UMFK Esja í leik Hertz-deildar meistaraflokks karla í gær. Lokastaða var 1 – 4. Hinir ungu og efnilegu leikmenn Hilmir Dan Ævarsson (1999) og Viktor Ísak (2000) spiluðu sína fyrstu leiki í Meistaraflokki karla og stóðu sig virkilega vel. Framtíðin er björt.  Þökkum öllum sem mættu á leikinn

Nánar…


Í kvöld kl.19:45 tekur SR á móti Esju í Laugardal

Í kvöld munu SR-ingar taka á móti sambýlingum sínum í Esju í Laugardalnum. Esjuliðar byrjðu tímabilið af krafti þegar þeir lögðu Björninn nokkuð sannfærandi 6 – 2 síðastliðinn þriðjudag.  SR-ingar fóru góða ferð norður til Akureyrar og unnu þar baráttu sigur , 6 – 8, á SA-Víkingum.  Í Egilshöll munu Bjarnarmenn taka á móti SA-Víkingum

Nánar…


Kynningarfundur íshokkídeildar næsta sunnudag!

13/09/2016

Haldinn verður upplýsingafundur fyrir foreldra iðkenda íshokkídeildar SR næstkomandi sunnudag kl 13:00.  Á fundinum verður farið yfir áætlanir vetrarsins, þjálfarar kynntir og spurningum svarað.  Heitt kaffi verður á könnunni, vonandi sjáum við sem flesta. Hokkístjórnin.


Richard Tahtinen ráðinn sem aðalþjálfari íshokkídeildar!

Núna nýverið gekk stjórn íshokkídeildar frá samningi við Richard Tahtinen um að hann taki að sér aðalþjálfarastöðu hjá íshokkídeildinni í vetur.  Richard er félagsmönnum ekki ókunnur enda hefur hann verið viðloðinn íshokkí á Íslandi um árabil.  Fyrst kom hann til SR tímabilið 2002-2003 og spilaði með meistaraflokki og þreytti þar sína frumraun sem þjálfari.  Eftir

Nánar…


Hokkískautaskólinn byrjar á sunnudag!

Hokkískautaskólinn byjar á sunnudaginn kl 12:00. Rannsóknir sýna að íshokkí er ekki síður frábær íþrótt fyrir stelpur en stráka.  Í vetur verður Hokkískautaskólinn miðvikudögum kl 17:30-18:45 og á sunnudögum frá 12:00-12:45.  Eins og síðustu ár verður Andri Freyr Magnússon skautaskólastjóri SR! Allir á ísinn! Frekari upplýsingar um hokkískólann má síðu Skautaskólans.


Andri Freyr áfram Hokkískautaskólastjóri!

Íshokkídeild Skautafélagsins endurréð Andra Frey Magnússon sem Hokkískautaskólastjóra í vetur!  Andri ætti að vera öllum félagsmönnum löngu kunnur enda hefur hann verið viðloðinn hokkískautaskólann í fjöldamörg ár ásamt því að vera dómari í Meistaraflokki og slyngur krulluspilari einsog sést á myndinni.  Andri mun byrja á því að taka á móti áhugasömum krökkum í hokkískautaskólanum sem

Nánar…


Aðalfundur Skautafélags Reykjavíkur

12/06/2016

Aðalfundur Skautafélags Reykjavíkur verður haldinn í félagsaðstöðunni í Skautahöllinni í Laugardal sunnudaginn 26. júní kl.15:00.  Félagmenn eru hvattir til að mæta. Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir: Kosinn fundarstjóri og fundarritari. Lesin upp fundargerð síðasta aðalfundar. Lögð fram skrifleg skýrsla aðalstjórnar og skýrslur deilda. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar aðalstjórnar ásamt endurskoðuðum reikningum einstakara deilda

Nánar…


Aðalfundur íshokkídeildar

19/05/2016

Aðalfundur íshokkídeildar Skautafélags Reykjavíkur verður haldinn fimmtudaginn 26. mai klukkan 20:00. Fundurinn verður haldinn í félagsaðstöðu SR í Skautahöllinni í Laugardal. Dagskrá fundarins er eftirfarandi: 1. Kosinn fundarstjóri og aðrir embættismenn fundarins 2. Lesin upp fundargerð síðasta aðalfundar deildarinnar 3. Lögð fram skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár 4. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar til samþykktar 5.

Nánar…